Færsluflokkur: Menning og listir

Haustjafndægur 22.september - Formleg sýningarlok

Freyjumynda-sýningarlok 2Freyjumynda-sýningarlok

 

 

 

 

 

 

 

Lokasamsæti í Akureyrar-Akademíunni (gamla Húsmæðraskólanum við Þingvallarstæti).
Flestir af listamönnunum sem þátt tóku í sýningunni, komu saman ásamt mökum og konum úr Mardallar-ráði og sýningarstjóra Guðrúnu Pálínu og skoðuðu myndir af verkum og nutu veitinga og góðs félagsskapar. 

Formlega er sýningunni nú lokið, en eitthvað að verkunum munu standa áfram fram eftir hausti og jafnvel fram í fyrstu snjóa. Svo enn er hægt að fara í skemmtilega Freyjumyndagöngu.
Takk fyrir þátttökuna í sumar og samveruna á lokasamsætinu !!

Þeir sem hafa hugmyndir um þema fyrir áframhald....endilega látið í ykkur heyra.


Akureyrarvaka

Gengið verður um hluta sýningarinnar Freyjumyndir á Akureyrarvöku.

Gangan hefst á Glerártorgi við blómabúðina Mímósa kl.10.30 á laugardag. Áætlaður tími er rúmur klukkutími, lengur ef menn treysta sér. Ekki er hægt að sjá öll verkin þennan dag því sumstaðar er lokað um helgar.

Verk Þórarins Blöndals gat ég ekki fundið í Laxdalshúsi en setti á þessa síðu mynd af teikningu sem fannst þar á vegg. Verk Guðrúnar Höddu Bjarnadóttur er ónýtt, bletturinn var sleginn, en hún hafði sáð í hann í samvinnu við Akureyrarbæ. Harma ég þetta.

Nú er að taka fram staðsetningartækin og reyna að finna staðina sem Steini hvetur okkur til að fara á og ná sambandi við gyðjuna Freyju.


Myndir af verkum.

HannaHlif1HannaHlif2

 

 

 

 

 



HANNA HLÍF BJARNADÓTTIR
Marsibil - Æting
Fæðingardeild FSA 4.hæð

 

 SunnaValgerdar

SUNNA VALGERÐARDÓTTIR
Í glugga á 2.hæð
AkureyrarAkademínunni
Þórunnarstæti 99







 

 

 JonLaxdalJonLaxdal1

 

 

 

JÓN LAXDAL

Frúin í Hamborg
Hafnarstræti

 

 GuðbjorgRingsted

GudbjorgRingsted2GUÐBJÖRG RINGSTED

Málverk
Mimosa Blómabúð, Glerártorgi

 

 

 

 

 

 

 

HallgrimurIngolfssonHALLGRÍMUR INGÓLFSSON
Stórglæsileg - Málverk á striga
Norræna Upplýsingarstofan,
Kaupvangsstræti Listagilinu

 

 

 

 

 

LaufeyMPalsdottirLAUFEY MARGRÉT PÁLSDÓTTIR
Málverk á striga

Abaco Heilsulind
Hrísalundi 1, 600 Akureyri

 

 

 

 

GudnyKristmannsGUÐNÝ KRISTMANNS
Frjósemi - Málverk á striga

Rósagarðurinn - Hótel KEA
Kaupvangsstræti

 

 

 

 

ErikaLindERIKA LIND ÍSAKSEN
Málverk

Skrifstofa Menningarmiðstöðin í Listagili
Ketilhús, Kaupvangsstræti Akureyri

 

 

 

 

 

 

StofaArnar Ómarsson, Sean Millington og Pauline Richard.
STOFA  - VIÐ ÞÓRUNNARSTRÆTI 104
Hugleiðingar um samskipti kynjanna og 'viðeigandi' talsmáta

''Við þökkum Ómari Þór Guðmundssyni fyrir mikla aðstoð við uppsetningu og Aðalheiði Sigríði Eysteinsdóttur fyrir að skaffa okkur flest allt sem við notuðum í innsetninguna.''

 

ArnarOmarssonArnarOmarsson+

 

 

freyja 042

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

NÚTÍMA FREYJA

Móðir-Kona-Meyja

Nútímakonan sem tók þátt í búsáhaldabyltingunni:

MEIRI ÁST-MEIRI FRJÓSEMI

 

Dagrún Matthíasdóttir

www.dagrunmatt.blogspot.com

Olíumálverk á MDF

í andyri Landsbankans við Ráðhústorg

 

 

 

AnnaGunnars1AnnaG3

 

 

 

 

 

 

 

 

AnnaG5AnnaG6

 

 

 

 

ANNA GUNNARSDÓTTIR

1.Fæðingardeild FSA

2.Heilsugæslustöð 4.hæð

3.Vinnustofan Hvítspói Brekkugötu

 

 

 

 

 

 

 

HrefnaHardardottirFREYJA ÚR VIÐJUM
Ljósmynd/filma 1994-2009
HREFNA HARÐARDÓTTIR
Sundlaug Akureyrar - kaffistofa

 

 

 

 

 

ThorarinnBlondal

ÞÓRARINN BLÖNDAL
Marsibil - teikning
Laxdalshús, Hafnarstræti 11, 600 Akureyri

 

 

 

 

 

 

 

 

KristjanPetur

ÞAGNAR-FREYJA

Kristján Pétur Sigurðsson

Kaupvangsstræti í Listagilinu fyrir utan Populus Tremula.

http://kristjanovich.blogspot.com/2009/06/making-of-agnar-freyja.html

 

 

 

GeorgeH

GEORGE HOLLANDERS
HIN ÞRÍSKIPTA GYÐJA (The Triple Goddess)
Móðir - kona - meyja
Ég nota vörubretti vegna þess að Akureyrarbær er með áætlun um að endurnýta öll vörubretti á svæðinu í moltugerð.
Freyja er frjósemisgyðja – vaxandi, full og minnkandi mána, eða hringrás lífsins.
Litli Hvammur í Eyjafjarðarsveit (fyrsti bær sunnan Kjarnaskógar, verkið má finna í lítilli mýrarlaut norðan og neðan við bæinn.



 

GHskilti

GeorgeHollanders

 

 

 

 

 

 

 

SveinbjorgH

 

 

SVEINBJÖRG HALLGRÍMSDÓTTIR
Hár og Heilsa Snyrtistofa,
hornið á Geislagötu og Glerárgötu.

 

 

 

RosaKristin2

RosaKristin

KLÆÐI FREYJU blakta í golunni.
BRÍSINGARMEN.

Birkilundur 9, 600 Akureyri

RÓSA KRISTÍN JÚLÍUSDÓTTIR

 

 

 

 

 

  

Hadda

Guðrún HADDA BJARNADÓTTIR
KORNGYÐJAN
Í brekkunni í Barmahlíð á móti Sunnuhlíð, 603 Akureyri

Korngyðjan var slegin amk tvisvar, af Umhverfisdeild Akureyrarbæjar..... svo því miður er ekkert eftirstandandi af henni nema í huganum. 

 

 

Ólafur Sveins

olisveins1.jpg

ÓLAFUR SVEINSSON
Penninn-Bókval 2 hæð
Hafnarstræti

Hún flytur skilaboð um sætindi, ást og umhyggju. Fegurð, líf og dauða. Hún átti jú vagn sem dreginn var af köttum, og borðinn eins og fegurðardrottingar bera (en það grátbroslega við hann er að það er einn og sami borðin sem einnig er notaður í útfararkransa). Hundurinn sem skreytir borðann heitir Freyja og er yndisleg og ástrík tík sem er mikið elskuð af eiganda sínum. Svo fékk ég lánaða gínu-torso.
Toppurinn, pilsið og borðinn er verkið í sjálfu sér. 

 

HjordisFrimann HJÖRDÍS FRÍMANN, FlugvöllurBryndisKondrupBRYNDÍS KONDRUP FlugvöllurHlynurHallsson
HlynurHallsson2

HLYNUR HALLSSON Flugvöllur 

 

 

 

 

 

 

 

 

RagnheiðurB.ThorsdottirRAGNHEIÐUR BJÖRK ÞÓRSDÓTTIR
Hvíta og svarta TARA
Koparvír á viðarplötu.

Vinnustofan Stóllinn Kaupvangsstræti

 

 

 

 

 

 

gudrunpalina2.jpg

gudrunpalina1

 

 

 

 

 

 

 



GUÐRÚN PÁLÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Brekkugata 35 Akureyri.

 SigridurAgustsd

SIGRÍÐUR ÁGÚSTSDÓTTIR

Reykbrenndur leir
Amtsbókasafnið Akureyri

 

 

 

 

 

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Bæklingur tilbúinn.

Í dag sunnudaginn 21. júní hefst sýningin Freyjumyndir. Einhverjar Freyjur eru þegar komnar upp en öðrum seinkar. Skráin verður prentuð út og sett í Ketilhúsið þar sem fólki gefst tækifæri á að fá sér eintök. Næstu vikurnar mun ég ganga á milli staða og mynda öll verkin og setja ljósmyndir á þessa síðu, þeir sýnendur sem vilja mega þó gjarnan senda mér í tölvupósti mynd af sínum verkum því þau gætu sýnt annað sjónarhorn en mitt.

Að lokum vil ég þakka öllum sýnendum fyrir þátttökuna og frábæra samvinnu, þetta hefur verið einstaklega skemmtilegt. Ég vil þakka Valgerði H. Bjarnadóttur upphafskonu viðburðarraðanna og skipuleggjenda ráðstefnunnar, einnig þakka ég Mardallarkonum fyrir þeirra hlut og Hrefnu Harðardóttur  stjórnenda sýningarnefndarinnar og mína hægri hönd við gerð þessarar síðu og að lokum Sunnu Valgerðardóttur fyrir hönnun á sýningarskránni.

Njótið öll sýningarinnar,

Guðrún Pálína Guðmundsdóttir gudrunpalina@hotmail.com

22. júní

Fór í viðtal á rás tvö, svæðisútvarpið í dag. það var sent út rétt fyrir klukkan sex. Ýmislegt var klippt út sem ég sagði,  það vissi ég áður því við höfðum bara 2-3 mínótur. Ég taldi samviskusamlega upp alla þátttakendur og hvar verkin væru en það kom bara brot af því. Hefur trúlega verið of löng upptalning. Ég vil hins vegar síst gera upp á milli sýnenda hvað opinbera umræðu varðar. Mér finnst frábært að haft er samband frá fjölmiðlum og þakka hverskonar jákvæða fjölmiðla athygli. Ég nefndi líka bækur um Freyju en það komst ekki með. Er með í láni bækurnar Freyju eftir Johanne Hildebrandt og Frigg og Freyja eftir Ingunni Ásdísardóttur, stefni að því að lesa Snorra Eddu líka og jafnvel halda svo áfram og les Sæmundar Eddu með tíð og tíma. Ég hef líka leitað á netinu að upplýsingum um Freyju og séð eitt og annað þar. Ég bað áhorfendur að skoða vel sýninguna og verkin oftar en einu sinni því sum breytast. Merkingar eru ekki alltaf augljósar og er það liður í því að sýningin kemur inn hægt og hljóðlaust án formlegrar opnunar og fer svo aftur hljóðlaust á haustjafndægri. Valgerður H. Bjarnadóttir hefur skrifað ritgerð um Freyju sem er aðgengileg á heimasíðunni undir www.vanadis.is og heitir Vanadís, völva og valkyrja. Svo er þar líka grein um Freyju og Vani undir Prolegomena of Vanir Healing, þegar maður smellir á ritverk. GPG


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Um verkin :

Hlynur Hallsson
“Niðurstöður eftirfarandi könnunar á heilsufari, líðan og vinnuumhverfi
flugfreyja sýna að 93% flugfreyja telja heilsu sína almennt góða eða mjög
góða og 23% telja heilsu sína betri en heilsu annarra kvenna á svipuðum
aldri. Þegar spurt var annars vegar um líkamlega og hins vegar andlega
heilsu sögðu 86% að líkamleg heilsa væri góð eða mjög góð og 87%
höfðu sömu sögu að segja um andlega heilsu sína. Almennt voru
flugfreyjurnar sáttar við fjölskyldu sína og vinnu. Um 40% þátttakenda
höfðu orðið fyrir kynferðislegri áreitni á vinnustað, af þeim hafði 31%
verið áreitt oftar en einu sinni. Farþegar eða samstarfsmenn voru gerendur
í flestum tilfellum. Farþegar áttu einnig helst sök á einelti, líkamlegu
ofbeldi og hótunum.
Allir þátttakendur í rannsókninni voru flugfreyjur á skrá hjá
Flugfreyjufélagi Íslands í apríl 2002 sem starfað höfðu tvö ár eða lengur
við flugfreyjustörf. Svörun var 68,7%. Meðalaldur þátttakenda var 40,9
ár, 83% þeirra voru í sambúð eða giftar, þriðjungur hafði ekkert barn á
framfæri sínu og þriðjungur var með eitt barn á framfæri. Um 48% höfðu
lokið stúdentsprófi og 21% háskólaprófi. Sextíu og þrjú prósent voru í
75% starfi eða meira og 19% voru í námi með starfinu„

Heilsufar, líðan og vinnuumhverfi flugfreyja
Herdís Sveinsdóttir, Hólmfríður K. Gunnarsdóttir og Hildur Friðriksdóttir
Rannsóknastofnun í hjúkrunarfræði
Háskóla Íslands
Ritröð í hjúkrunarfræði 3. árg 2. tölublað 2003
ISSN 1026 3128

Þorsteinn Gíslason (Steini)
To think/do think.  Hugmyndin á bak við verkið: Hún er í sjálfu sér ekki flókin, þar er aðeins gengið út frá spurningunum: ”Á Völuspá einhverja samsvörun í nútímanum?”og “Hvernig er hægt að nálgast visku völvunnar?” Freyjur goðafræðinnar eru ekki neinar barbídúkkur, þær standa jafnfætis körlunum í undirferli,vélráðum og sjálfstæði auk þess að ráða örlögum manna (Urður,Verðandi,Skuld) og segja til um óorðna hluti(Völvur).Í Völuspá er ímynd græðgi og gullþorsta talin vera Gullveig sú sem æsir drápu þrisvar og gekk þá aftur.(síðustu misseri sýna okkur hversu erfitt er að ganga frá henni). Í Völuspá kemur líka fram skírskotun í mansal þar sem æsir lofa smið af jötnakyni “Freyju, Sól og Mána” fyrir að endurbyggja Ásgarð en þeir geta svo ekki staðið við það. Hvers vegna ekki? Er það út af sjálfstæði Freyju?.Völuspá er ort sem spásögn völvu en Óðinn fékk hana til að segja sér örlög heimsins.
Verkið:” To think/do think.” er einfalt í allri sinni gerð. Hugmyndin er sú að okkur sé öllum nauðsynlegt að komast úr skarkala og síbilju nútímans og eiga stund í næði með Freyju allra Freyja, móður jörð, til að hugsa sinn gang og uppskera jafnvægi, visku og hugarró. Þrjú hnit eru gefin eftir GPS staðsetningartæki, það eru staðir á Akureyri þar sem hægt er að vera einn með sjálfum sér og náttúrunni þótt þeir séu í þéttbýli.
 
Sæll Steini.
Um verkið þitt hef ég allt gott að segja. Það hefur í sér fólginn, mér
liggur við að segja hinn listræna kjarna, sem er sá að kalla okkur til
móts við veruleikann. Sönn list er þegar allt kemur til alls ekki annað en
hanagal til þess ætlað að vekja okkur, hreyfa við svefngenglunum, fá okkur
til að minnast þess sem við höfum alltaf vitað; þeirrar makalausu
staðreyndar að þessi heimur og við erum til. Sönn list, þegar hún nær á
annað borð að rjúfa gat á þykkan skráp okkar daglega lífs, fær okkur til
að gera það sem við fáumst nær aldrei til að gera. Hún fær okkur,
venjulega aðeins í fáein andartök, til að stansa, stara, skynja, hugsa - í
fáum orðum sagt, tengjast veruleikanum, vakna til undurleikans.
Listaverkið sameinar í fáein augnablik það sem hefur sundrast en ætti að
vera eitt - huga og heim. En því er líkast að okkur hafi verið byrlað
svefnmeðal og þess vegna sofnum við fljótt aftur - og okkur langar að því
er virðist til að sofa sem lengst. Við þurfum af þeim sökum sífellt á því
að halda að vera leidd eða lokkuð í aðstæður sem hjálpa okkur að stansa og
veita viðtöku því sem er. Þetta virðist mér einmitt vera það sem verkið
snýst um.

Þeir eru að vísu ófáir sem halda því fram að maðurinn geti almennt ekki
tekið við því sem er. Að horfast í augu við það lami sálina líkt og það
skaðar sjónina að horfa í sólina. Og samt höfum við mörg dæmi um ódeigar
tilraunir mannsandans til að gangast hreinskilingslega við eðli
veruleikans og mannlegra kringumstæðna. Það er óneitanlega erfiður biti að
kyngja að ragnarrök skuli vera innsta eðli lífsins. Vitundin um það er
okkur dýru verði keypt. Strax í bernsku gerum við okkur ljóst að við erum
hluti af einu allsherjar sjónarspili fæðingar og tortímingar, og það eina
sem við getum verið viss um er að við verðum sjálf eyðingunni að bráð fyrr
en seinna. Að vakna upp sem hugsandi vera er í og með að vakna til þessa
hryllings - vakna til vitundar um hvað maður sjálfur, þau sem eru manni
kærust, og allt sem lifir þarf að ganga í gegnum, líða. Lífið væri ekki
líf ef því hryllti ekki við tortímingunni, dauðanum. Það er í okkar innsta
eðli sem lifandi vera, í holdi okkar og blóði, að berjast gegn honum, líta
á hann sem okkar mesta og versta óvin. En við erum líka hugsandi verur og
það sem hugsunin lætur okkur í té er nokkuð óvænt. Hún færir okkur meðal
annars Völuspá - ljóðabálk sem lyftir okkur á hærra sjónarhól, og gerir
okkur mögulegt að sjá aðstæður okkar í víðara samhengi hlutanna. Þótt
lestur slíks ljóðs gefi okkur ef til vill ekki einn og sér hugrekki til að
horfast beint í augu við eðli þess lífs sem við deilum og erum, þá getur
hann fært okkur nær sönnum skilningi á því að líf og dauði geta ekki án
hvors annars verið, og að til þess að lifa í raun og veru þurfum við að
vera reiðubúinn að deyja - aftur og aftur uns yfir lýkur.
Jón Ásgeir Kalmansson siðfræðingur.

Öðrum sýnendum er ekki heimilt að nota þennan texta í sín verk/með sínum verkum.

 

Guðrún Pálína Guðmundsdóttir



Freyjan mín fjallar um æskudýrku. Andlitið og augnsvipurinn eru í anda tískuljósmynda í tímaritum.

 

Um listamennina :

Sean Millington er að læra BA Painting í Camberwell College of Arts og er frá Bretlandi
Arnar Ómarsson er að læra BA Honors Photography í Camberwell College of Arts og er af Freyjulundi.
 


Sýningarstaðir

Sýningarstaðir:

- Anna Gunnarsdóttir - Verkið er samsett í þremur hlutum :
nr 1 á vinnustofunni Svartfugl og Hvítspóa Brekkugötu 3a
nr 2 á Fæðingardeild FSA
nr 3 á Heilsugæslustöðinni 4 hæð.

- Arnar Ómarsson og Sean Millington sýna innsetningu, staðsetning kemur í ljós síðar.

- Bryndís Kondrup -  Flugstöð (flugvellinum)

- Dagrún Matthíasdóttir -  Landsbankinn, Ráðhústorgi

- Erika Lind Isaksen -  Ketilhúsið skrifstofuveggur Listagil.

- Georg Hollanders, Ívar Hollanders og Viktor Hollanders, Litli-Hvammur í Eyjafjarðarsveit, fyrsti bær sunnan við Flugvöllinn/Kjarnaskóg. Verkið verður í litlu mýrarlautinni norðan og neðan við bæinn.

- G. Hadda Bjarnadóttir - í grænu brekkunni við Barmahlíð á móti Sunnuhlíð.

- Guðbjörg Ringsted - Mímósa blómabúð á Glerártorgi.

- Guðný Kristmanns - í  matsal, Rósagarðurinn/Hótel KEA.

- Guðrún Pálína Guðmundsdóttir - Gallerí+, Brekkugötu 35 útiveggur.

- Hallgrímur Ingólfsson - Norræna upplýsingastofan Kaupvangsstræti, (sami inngangur og í Deigluna)

- Hanna Hlíf Bjarnadóttir - Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, fæðingadeild. Opið á heimsóknartímum.

- Hjördís Frímann -  Flugstöð (flugvellinum)

- Hlynur Hallsson - Flugstöð  (flugvellinum)

- Hrefna Harðardóttir - Sundlaug Akureyrar, kaffistofa

- Jón Laxdal - Frúin í Hamborg, Hafnarstræti

- Laufey Pálsdóttir - Abaco, heilsulind

- Ólafur Sveinsson - Penninn/Bókval, Hafnarstræti

- Sigríður Ágústsdóttir - Amtsbókasafnið Akureyri

- Sveinbjörg Hallgrímsdóttir - í Svartfugl og Hvítspóa Brekkugötu 3a og Hár og Heilsa, Geislagötu 14.

- Sunna Valgerðardóttir -  verk í gluggum og inni í
AkureyrarAkademíunni (gamla Húsmæðraskólanum)  Þórunnarstræti.

- Kristján Pétur Sigurðsson - fyrir utan Populus Tremula, Kaupvangsstræti.

- Ragnheiður Þórsdóttir - Gallerí Stóllinn, Kaupvangsstræti

- Rósa Júlíusdóttir - í heimilisgarðinum, Birkilundi 9.

- Þórarinn Blöndal - Laxdalshús, opið um helgar 14-17.

- Þorsteinn Gíslason (Steini) - Þrjú hnit eru gefin eftir GPS staðsetningartæki, það eru staðir á Akureyri þar sem hægt er að vera einn með sjálfum sér og náttúrunni þótt þeir séu í þéttbýli.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband